Ábendingar

Er tölvan farin að hitna mikið?  Er viftan sífellt á fullu?  Er vont að vera með fartölvuna í fanginu sökum hita?

Ef fartölvan er mikið í fanginu eða liggur uppí sófa dregur hún að sér mikið ryk.  Þetta ryk sest í kæliraufarnar og tölvan ofhitnar.  Þetta getur leitt til þess að tölvan hægir á sér og slekkur að lokum á sér.  Einnig getur mikill hiti leitt til bilana.

ps. Við getum tekið tölvuna þína og hreinsað allt ryk úr henni.  Þannig að henni og þér líði betur.

Uppfærsla á eldri tölvum

 

Eldri tölvur er oftast hægt að uppfæra þannig að vit sé í.  Stundum eru tölvurnar það gamlar að uppfærsla borgar sig ekki.

Við getum uppfært tölvuna þína þannig að þú fáir meira út úr henni.  Flestar tölvur þurfa ekki að vera mjög öflugar til þess að nýtast notendum sínum í því sem flestir nota tölvurnar sínar í.  Flestir einstaklingar fara á netið, skrifa tölvupóst, og vinna í einhverri ritvinnslu og til þess þarf tölvan ekki að vera mjög öflug.

Flöskuhálsinn í flestum tölvum er skortur á vinnsluminni en það er ekki mikið mál að skipta vinnsluminni út og fá þannig mun meira út úr tölvunni.   Tölvuleikirnir kalla flestir á öflug skjákort sem einni er ekki mikið mál að stækka.