Ábendingar

Facebook Vírusar.
Farið varlega í að trúa öllu sem þið sjáið á facebook.  Þótt þið fáið eitthvað sent frá vini ykkar á Facebook er ekkert öruggt að hann hafi í raun og veru sent það.  Óprúttnir aðilar reyna oft og gengur vel að gabba einstaklinga til þess að opna fyrir sig leið inn í tölvur þeirra.

Það er sama hversu góðar vírusvarnir eru í tölvunni ef notandinn segir "komdu inn" þá kemst vírusinn inn.

ps. Við vírushreinsum tölvur.

Vefsíðugerð

 

Við bjóðum uppá vefsíðugerð fyrir alla. Vantar þig vefsíðu fyrir fyrirtæki þitt, félagsskapinn, áhugamálið eða bara fyrir þig persónulega.  Hafðu samband og við finnum út hvað það er sem þú vilt gera á netinu.

Flest allir hafa skoðun á því hvað þeir vilja sjá á vefsíðu sinni en aðrir eru ekki vissir.  Vita bara að þeir þurfa að vera með og vera sýnilegir.  Við aðstoðum viðskiptavini okkar við að koma sér á framfæri á einfaldan og snyrtilegann hátt.  Við leggjum áherslu á að vefir okkar séu stílhreinir og að auðvelt sé að rata um þá.

Við gerum flesta okkar vefi í Joomla vefumsjónakerfinu.  Þetta umsjónakerfi er notað af milljónum notenda um allan heim. Þúsundir fyrirtækja eru að vinna í nýjum lausnum og bættri virkni í Joomla tengdum lausnum.  Notendakerfið er að mestu leiti á íslensku en einnig er hægt að hafa það á ensku ef notandinn vill það frekar.  Lítil takmörk eru fyrir því hversu stórir vefirnir geta orðið og enn síður takmörk fyrir því sem hægt er að gera á vefsíðum gerðum í Joomla.

Skoðaðu upplýsingar um möguleikana á næstu síðum